top of page
  • Writer's pictureGolfklúbbur Suðurnesja

Aðalfundur 2021

Aðalfundur Golfklúbbs Suðurnesja 2021 verður haldinn miðvikudaginn 1. desember næstkomandi kl. 18:00 í Leirunni. Vegna samkomutakmarkana er hámarksfjöldi 50 manns og því biðjum við þá félaga sem ætla sér að mæta á fundinn að skrá sig með því að senda tölvupóst á gs@gs.is. Áður en hefðbundin dagskrá hefst mun fulltrúi frá ÍSÍ afhenda GS staðfestingu á fyrirmyndarfélagi ÍSÍ.


Dagskrá aðalfundar:

1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.

2. Skýrsla stjórnar fyrir síðasta starfsár.

3. Reikningar lagðir fram og skýrðir.

4. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga. Atkvæðagreiðsla um reikningana.

5. Lagabreytingar.

6. Lögð fram tillaga um gjaldskrá.

7. Kosning formanns.

8. Kosning fjögurra stjórnarmanna.

9. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga og eins til vara.

10. Önnur mál.


Afl atkvæða ræður á aðalfundi. Atkvæðisrétt hafa allir félagsmenn GS 18 ára og eldri sem greitt hafa árgjald þess starfsárs sem er að ljúka og mættir eru á aðalfund. Þeir eru einnig kjörgengir til stjórnarkjörs. Tilkynningar um framboð til stjórnar þurfa að hafa borist skrifstofu GS minnst viku fyrir aðalfund.


Við hvetjum alla félaga í Golfklúbbi Suðurnesja sem hafa áhuga á að leggja sitt af mörkum og vilja vinna að frekari uppgangi klúbbsins, að gefa kost á sér til stjórnar- eða nefndarstarfa.


Kveðja,

Stjórn GS





197 views
bottom of page