top of page
Writer's pictureGolfklúbbur Suðurnesja

Aðalfundur 2024

Aðalfundur GS er í kvöld miðvikudaginn 27. nóvember 2024 í Leiru og og hefst kl. 18:00.


Dagskrá aðalfundar:

1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.

2. Skýrsla stjórnar fyrir síðasta starfsár.

3. Reikningar lagðir fram og skýrðir.

4. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga. Atkvæðagreiðsla um reikningana.

5. Lagðar til tillögur um breytingar á lögum félagsins ef um er að ræða

6. Lögð fram tillaga um gjaldskrá.

7. Kosning formanns.

8. Kosning stjórnarmanna.

9. Kosning skoðunarmanna reikninga

10. Önnur mál


Samkvæmt 2.mgr. 6.gr. laga klúbbsins bera að tilkynninga framboð til stjórnar að hafa borist skrifstofu GS minnst viku fyrir aðalfund. Í kjöri í ár eru formaður til eins árs og þrír stjórnarmenn til tveggja ára og einn stjórnarmaður til eins árs..


Til stjórnar til tveggja ára:  Núverandi stjórnarmenn þau Guðrún Þorsteinsdóttir og Gunnar Ellert Geirsson hafa boðið sig fram til áframhaldandi stjórnarsetu til tveggja ára. Þá hefur Vignir Elísson einnig boðið sig fram til tveggja ára stjórnarsetu.


Til stjórnar til eins árs. Ragnar Olsen gefur kost á sér í stjórnarsetu til eins árs.


Þá hefur Sveinn Björnsson, formaður, tilkynnt að hann sé í framboði til áframhaldandi formennsku fyrir næsta árið.


Önnur framboð hafa ekki borist og er framboðsfresti lokið.





91 views0 comments

Comments


bottom of page