top of page

Ingi Rafn unglingameistari GS – ungum kylfingum fjölgar

  • Writer: Golfklúbbur Suðurnesja
    Golfklúbbur Suðurnesja
  • Jul 15
  • 2 min read

Meistaramót barna og unglinga Golfklúbbs Suðurnesja fór fram í síðustu viku. Þrátt fyrir að seinni keppnisdagurinn þyrfti að falla niður vegna slæmrar veðurspár var mótið afar vel heppnað og gaman að sjá hversu margir ungir kylfingar tóku þátt.


Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá að barna- og unglingastarf klúbbsins heldur áfram að eflast og sífellt fleiri eru farin að spreyta sig í mótum. Þessi þróun lofar góðu fyrir framtíð Golfklúbbs Suðurnesja.


Keppnisfyrirkomulagið var sniðið að aldri og reynslu þátttakenda. Flokkur 18 ára og yngri lék af gulum teigum, 15 ára og yngri af bláum teigum, 12 ára og yngri í 18 holu keppni af rauðum teigum.


Í flokki 12 ára og yngri (9 holur) var í fyrsta sinn keppt af nýju gullteigunum í Meistaramóti GS. Gullteigarnir eru mikilvæg viðbót við Hólmsvöll og gera yngstu kylfingunum kleift að leika og upplifa völlinn á sínum forsendum. Við viljum færa Ásgeiri Eiríkssyni og Andrési Guðmundssyni bestu þakkir fyrir vinnu þeirra við vallarmat og uppsetningu gullteiganna.


Í elsta flokki mótsins varð Ingi Rafn William Davíðsson unglingameistari GS 2026 eftir að hafa leikið á 80 höggum.


Úrslit

Undir 18 ára

1. sæti: Ingi Rafn William Davíðsson – 80 högg

2. sæti: Ómar Orri Gíslason – 91 högg (hlutkesti)

3. sæti: Bjarni Ívar Ragnarsson – 91 högg


Undir 15 ára

1. sæti: Jóhann Gunnar Jónsson – 79 högg

2. sæti: Kolfinnur Skuggi Ævarsson – 89 högg

3. sæti: Einar Þór Sævarsson – 97 högg


12 ára og yngri (18 holur)

1. sæti: Sævar Freyr Jóhannsson – 98 högg

2. sæti: Ragnar Darri Guðnason – 101 högg

3. sæti: Kolbeinn Pétur Hauksson – 111 högg


12 ára og yngri (9 holur)

1. sæti: Stefán Lee Keilen – 52 högg

2. sæti: Vignir Nói Helgason – 55 högg

3. sæti: Guðmundur Garðar Steindórsson – 57 högg


Þótt seinni keppnisdagurinn væri felldur niður var verðlaunaafhending haldin samkvæmt áætlun og að henni lokinni buð Langbest öllum keppendum í pizzaveislu. Við kunnum Langbest bestu þakkir fyrir stuðninginn og þátt sinn í að gera daginn skemmtilegan fyrir unga kylfinga.


Golfklúbbur Suðurnesja óskar öllum verðlaunahöfum innilega til hamingju og þakkar öllum keppendum, foreldrum, sjálfboðaliðum og starfsfólki sem lögðu sitt af mörkum. Það er einstaklega ánægjulegt að sjá barna- og unglingastarfið vaxa með hverju árinu og við hlökkum til að fylgjast með þessum efnilega hópi halda áfram að dafna.



 
 
 

Comments


bottom of page