top of page
  • Writer's pictureGolfklúbbur Suðurnesja

Kvennamót BIO EFFECT

Sunnudaginn 3. júní n.k. fer fram Opna BIOEFFECT kvennamótið á Hólmsvelli í Leiru. Veitt verða verðlaun fyrir sex efstu sætin í punktakeppni og efsta sætið í höggleik án forgjafar. Einnig verða veitt nándarverðlaun á tveimur par-3 brautum og lengsta drive. Dregið verður úr skorkortum í mótslok.

Allir þátttakendur í mótinu fá teiggjöf frá BIOEFFECT. Ræst verður út af öllum teigum kl. 11:00 og er mæting eigi síðar en kl: 10:30. Veitingar verða í boði fyrir og eftir mót. Skráning í mótið fer fram á golf.is og verð í mótið er kr: 5.500.- Vinningarnir eru glæsilegir í boði BIOEFFECT. 1.sæti án forgjafar: BIOEFFECT Lúxus gjafasett 1.sæti með forgjöf: BIOEFFECT Lúxus gjafasett 2.-6. sæti með forgjöf: BIOEFFECT gjafasett Nándarverðlaunin eru á tveimur par 3 brautum vallarins. 8. hola BIOEFFECT húðvara 
16. hola BIOEFFECT húðvara 
Lengsta teighögg: BIOEFFECT húðvara Dregið verður úr skorkortum í lok mótsins. 
 Hámarksþátttaka er 92 konur.

8 views
bottom of page