top of page

Metþátttaka í bikarkeppni GS – fyrstu viðureignir farnar af stað!

  • Writer: Golfklúbbur Suðurnesja
    Golfklúbbur Suðurnesja
  • May 7
  • 1 min read

Skráningu í bikarkeppni Golfklúbbsins lauk 1. maí og þátttakan í ár sló í gegn – alls skráðu sig 96 kylfingar, sem sýnir hversu vinsæl keppnin er orðin meðal félagsmanna.


Keppnin er frábrugðin hefðbundnum mótum þar sem hún er holukeppni með forgjöf. Það gerir öllum kleift að keppa á jafnréttisgrundvelli og veitir kylfingum frábært tækifæri til að spila með nýju fólki, efla tengsl og njóta golfíþróttarinnar í góðum félagsskap.


Keppnin hófst í vikunni og þessi mynd var tekin rétt fyrir fyrstu viðureignina, þar sem Jóhann Gunnar Jónsson (f. 2013) og Þorsteinn Geirharðsson (f. 1948) mættust. Leikurinn fór alla leið í 22 holur, þar sem Jóhann hafði að lokum betur í sannkölluðum baráttuleik milli kynslóða.


Við minnum keppendur á að tilkynna úrslit með því að senda línu á gs@gs.is um leið og leik er lokið.


Við hlökkum til að fylgjast með áframhaldinu í sumar – hver verður bikarmeistari Golfklúbbs Suðurnesja 2025?


Gangi öllum keppendum vel og njótið leiksins! 





 
 
 

Comentarios


bottom of page