Viltu kynna þér golf og fá að prófa?
Þann 13. maí hefst nýliðavika hjá Golfklúbbi Suðurnesja. Sigurpáll Geir Sveinsson, PGA-golfkennari og íþróttastjóri Golfklúbbs Suðurnesja, mun kynna golfíþróttina fyrir áhugasömum ásamt því að fara yfir grunnatriði. Námskeiðið miðar að þeim sem langar að prófa golf eða eru að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni. Miðað er við nýliða og þá sem hafa ekki náð 35 í forgjöf.
Mánudagur 13. maí: Kynning og kennsla Þriðjudagur 14. maí: Kynning og kennsla Fimmtudagur 16. maí: Farið á völlinn og spilað
Í boði eru tvær tímasetningar þessa daga: 19:00–20:00 20:00–21:00
Námskeiðið er frítt fyrir meðlimi Golfklúbbs Suðurnesja en aðrir greiða 5.000 kr. Fyrir þá sem síðan ganga í golfklúbbinn á árinu fæst gjaldið endurgreitt.
Eða sendi tölvupóst á gs@gs.is
Comments