Golfklúbbur Suðurnesja
Umgengni í glompum
Í glompum megum við fjarlægja lauf, torfusnepla og aðra lausung. Við þurfum samt að fara varlega því við fáum víti ef boltinn hreyfist við þetta.
Ef boltinn er í glompu megum við ekki snerta sandinn:
Til að prófa ástand sandsins.
Með kylfu rétt fyrir fram eða aftan boltann.
Með kylfu í æfingasveiflu.
Með kylfu í aftursveiflu fyrir högg.
Að öðru leyti megum við gera svo til það sem við viljum.