Alexander og Pétur með sigur í Stigamóti nr. 2
- Golfklúbbur Suðurnesja

- Jun 11
- 2 min read
Annað Stigamót sumarsins fór fram á Hólmsvelli 10. júní með 50 þátttakendum og góðri stemningu. Keppt var í punktakeppni og höggleik, þar sem hart var barist um efstu sætin.
Alexander Aron Hannesson fór með sigur af hólmi í punktakeppninni með 43 punkta. Pétur Þór Jaidee sigraði höggleikinn annað mótið í röð með glæsiskori – 68 högg.
Örvar Sigurðsson var næstur holu a 16.holu – 3,26 m frá.
Verðlaun í mótinu voru í boði Public Deli og færum við þeim bestu þakkir fyrir stuðninginn.
Punktakeppni – efstu sætin:
Alexander Aron Hannesson – 43 punktar
Bylgja Dís Erlingsdóttir – 40 punktar
Ólöf Einarsdóttir – 37 punktar (besti síðari hringur)
Höggleikur (nettó):
Pétur Þór Jaidee – 68 högg
Snorri Rafn William Davíðsson – 75 högg
Sigurður Stefánsson – 75 högg
Staðan eftir tvö Stigamót:
Keppnin heldur áfram að þróast með spennandi hætti - sérstaklega í kvennaflokki þar sem þrjár konur deila öðru sætinu með jafn mörg stig. Bylgja Dís Erlingsdóttir leiðir með 70 stig. Í karlaflokki hefur Ingi Rafn William Davíðsson tekið forystuna með stöðugum árangri í báðum mótum – en aðeins 5 stig skilja að efstu fimm sætin.
Karlar
Ingi Rafn William Davíðsson – 74 stig
Pétur Þór Jaidee – 73 stig
Hafliði Már Brynjarsson – 71 stig
Stefán Sigurðsson – 71 stig
Davíð Jónsson – 69 stig
Heildarstaðan í karlaflokki eftir tvær umferðir:
Konur
Bylgja Dís Erlingsdóttir – 70 stig
Guðný Ólöf Gunnarsdóttir – 67 stig
Guðrún Þorsteinsdóttir – 67 stig
Karitas Sigurvinsdóttir – 67 stig
Anna María Sveinsdóttir – 61 stig
Heildarstaðan í kvennaflokki eftir tvær umferðir:
Næsta Stigamót;
Þriðja Stigamót sumarsins fer fram þriðjudaginn 1. júlí og er nú opið fyrir skráningu í Golfbox (https://tourentry.golfbox.dk/?cid=4974637). Við hvetjum kylfinga á öllum getustigum til að taka þátt!











Comments