top of page
file.jpg

HÓLMSVÖLLUR Í LEIRU

Hólmsvöllur í Leiru er mörgum íslenskum kylfingum að góðu kunnur, enda rótgróinn keppnisvöllur þar sem margsinnis hafa farið fram Íslandsmót auk Norðurlandamóts og Evrópumóts eldri kylfinga. Það er hér, við þjóðveginn milli Garðs og Reykjanesbæjar, sem Golfklúbbur Suðurnesja hefur aðsetur.

Hólmsvelli svipar að mörgu leyti til breskra strandvalla. Náttúruöflin eru hér hluti af leiknum og þeirri upplifun sem honum fylgir. Leiran er þekkt fyrir krefjandi upphafsholur sínar, og þá einna helst þriðju brautina – Bergvíkina – þar sem aðeins þeir hörðustu þora að slá beint á flöt, yfir öldurótið sem lætur kröftuglega í sér heyra. Reynir þar verulega á einbeitingu þess sem slær.


Að loknum fyrstu fjórum brautunum liggur leiðin inn í land og gefst þá ýmist tækifæri til að bæta það tjón sem mögulega var unnið á skorkortinu í byrjun, eða bæta um betur. Til þess þarf kylfingurinn þó að leika af útsjónarsemi eins og ávallt er nauðsyn á strandvöllum.
 

Eftir að hafa lokið leik á hinni glæsilegu átjándu braut er notalegt að gera upp daginn í reisulegu klúbbhúsi Leirunnar, þar sem kostur gefst á að njóta í senn góðra veitinga sem og útsýnis yfir völlinn, strandlengjuna og Faxaflóa.

LEIRAN_A4.jpeg
bottom of page