top of page
  • Writer's pictureGolfklúbbur Suðurnesja

Aðalfundur 2019

Aðalfundur Golfklúbbs Suðurnesja 2019 verður haldinn sunnudaginn 1. desember nk. í golfskálanum í Leiru og hefst fundurinn kl. 16.00.

 

Í fimmtu grein laga Golfklúbbsins er gerð grein fyrir dagskrá fundarins: Störf aðalfundar eru: 1. Kosning fundarstjóra og fundarritara. 2. Skýrsla stjórnar fyrir síðasta starfsár. 3. Reikningar lagðir fram og skýrðir. 4. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga. Atkvæðagreiðsla um reikningana. 5. Lagabreytingar. 6. Lögð fram tillaga um gjaldskrá. 7. Kosning formanns. 8. Kosning fjögurra stjórnarmanna. 9. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga og eins til vara. 10. Önnur mál.

 

Ég vil benda félögum í GS sérstaklega á sjöttu grein sömu laga og lúta að væntanlegum framboðum: 6. grein. Afl atkvæða ræður á aðalfundi. Atkvæðisrétt hafa allir félagsmenn GS 18 ára og eldri sem greitt hafa árgjald þess starfsárs sem er að ljúka og mættir eru á aðalfund. Þeir eru einnig kjörgengir til stjórnarkjörs. Tilkynningar um framboð til stjórnar þurfa að hafa borist skrifstofu GS minnst viku fyrir aðalfund.

Ég hvet alla félaga í Golfklúbbi Suðurnesja, sem bera hag klúbbsins fyrir brjósti og hafa áhuga á að leggja sitt af mörkum til að tryggja áframhaldandi uppgang hans, að gefa kost á sér til stjórnar- eða nefndarstarfa og tilkynna það formanni uppstillingarnefndar eigi síðar en viku fyrir fund. Fyrir uppstillingarnefndinni fer John Berry og er hægt að senda honum tölvupóst á berry[at]simnet.is eða hafa sambandi við Andreu framkvæmdastjóra á andrea[at]gs.is eða í síma GS, 421-4100.

Að lokum langar mig að tilkynna ykkur kæru félagar að ég mun ekki gefa kost á mér áfram til stjórnar Golfklúbbs Suðurnesja. Ég hef setið í stjórn GS undanfarin sex ár, þar af fimm sem formaður. Þetta er búið að vera frábært tímabil í lífi mínu, ég hef unnið með mörgu góðu fólki á þessum árum; starfsfólki, stjórnum, nefndum og þeim frábæru sjálfboðaliðum sem klúbburinn hefur á að skipa. Ég hef fengið að kynnast fleiri félögum innan klúbbsins en mig hefði órað fyrir. Ég hef fengið að taka þátt í vexti klúbbsins og fjölmörgum breytingum sem hafa átt sér stað á þessum árum. Ef ég ætti að nefna eitthvað eitt sem stendur upp úr á þessum starfstíma mínum eru þeir fjölmörgu vinir sem ég hef eignast á þessum tíma, marga þeirra tel ég til minna bestu vina í dag. Þegar ég gaf kost á mér í stjórn GS var búið að vinna mjög gott starf af forverum mínum, ég tók við góðu búi og vona heitt og innilega að störf mín hafi eflt félagið og ég skili næstu stjórn jafngóðu eða jafnvel betra búi en ég tók við. Ég held að framundan sé góður tími í sögu Golfklúbbs Suðurnesja, hann hefur tækifæri til að vaxa enn meira og þroskast. Fjölmargt jákvætt er í deiglunni sem kemur til með að efla GS enn meir í náinni framtíð.

Félagar, takk fyrir samstarfið þessi sex ár og takið jafn vel á móti næsta formanni og tekið var á móti mér. Ég tek þó fram að ég er hvergi hættur afskiptum af Golfklúbbi Suðurnesja heldur verð ég boðinn og búinn að sinna sjálfboðaverkum eftir sem áður.

Áfram GS! Jóhann Páll Kristbjörnsson formaður Golfklúbbs Suðurnesja

8 views
bottom of page