Björgvin og Rut klúbbmeistarar GS 2026
- Golfklúbbur Suðurnesja

- 1 hour ago
- 3 min read
Meistaramóti Golfklúbbs Suðurnesja 2026 lauk á laugardag eftir glæsilega mótsviku þar sem 152 kylfingar tóku þátt í ellefu flokkum. Það er metþátttaka og fjölmennasta Meistaramót í sögu Golfklúbbs Suðurnesja.
Allir flokkar fengu að upplifa bæði shotgun-ræsingu og hefðbundna ræsingu. Við skipulag mótsins var lögð sérstök áhersla á leikhraða, leikgleði og góða upplifun allra keppenda.
Í ár var einnig tekin upp tvöföld skráning á skori. Skor voru skráð rafrænt í GolfBox jafnóðum en skorkort keppenda giltu sem opinber gögn mótsins. Með því var stigið skref nær þeim hefðum og gildum sem golfíþróttin byggir á, þar sem ábyrgð keppenda á eigin skori og undirritun skorkorta skipta miklu máli.
Dramatík allt fram á síðasta pútt
Í meistaraflokki karla stóð Björgvin Sigmundsson uppi sem sigurvegari á 296 höggum og varð þar með klúbbmeistari GS í annað sinn, en hann vann einnig titilinn árið 2019.
Baráttan um titilinn var mögnuð. Á lokaholunni púttaði Róbert Smári Jónsson á undan Björgvini og átti ernispútt sem hefði komið honum í forystu og sett alla pressuna á Björgvin. Aðeins örfáir sentímetrar skildu þar á milli þegar boltinn hafnaði rétt fram hjá holunni. Björgvin svaraði síðan með því að setja niður fuglapútt sitt á 18. flöt og innsigla sigurinn með eins höggs mun.
Í meistaraflokki kvenna vann Rut Þorsteinsdóttir öruggan sigur á 327 höggum. Hún lék sitt besta hring mótsins á lokadeginum þegar hún kom inn á 78 höggum og tryggði sér þar með sinn fimmta klúbbmeistaratitil. Með þeim áfanga bætist hún í glæsilegan hóp Karenar Sævarsdóttur og Karenar Guðnadóttur, sem einnig hafa unnið klúbbmeistaratitil GS fimm sinnum.
Spennan var þó langt frá því að vera bundin við meistaraflokkana. Sigurinn í 1. flokki karla, 65+ höggleik karla og opnum punktaflokki karla réðst á síðasta pútti mótsins. Í 2. flokki karla þurfti síðan að grípa til þriggja manna bráðabana eftir að þrír keppendur luku leik á sama skori.
Úrslit í öllum flokkum
Meistaraflokkur karla
1. sæti: Björgvin Sigmundsson – 296 högg
2. sæti: Róbert Smári Jónsson – 297 högg
3. sæti: Pétur Þór Jaidee – 298 högg
Meistaraflokkur kvenna
1. sæti: Rut Þorsteinsdóttir – 327 högg
2. sæti: Sólveig Björgvinsdóttir – 383 högg
3. sæti: Svandís Þorsteinsdóttir – 401 högg
1. flokkur karla
1. sæti: Davíð Jónsson – 315 högg
2. sæti: Óskar Halldórsson – 316 högg
3. sæti: Kristján Kristjánsson – 318 högg
2. flokkur karla
1. sæti: Atli Karl Sigurbjartsson – 330 högg (tryggði sér sigurinn í bráðabana á 5. holu)
2. sæti: Sveinn Björnsson – 330 högg
3. sæti: Sigurður Þór Hallgrímsson – 330 högg
3. flokkur karla
1. sæti: Friðrik Alexandersson – 272 högg
2. sæti: Fannar Helgi Rúnarsson – 276 högg
3. sæti: Snorri Már Jónsson – 276 högg
Opin punktakeppni karla
1. sæti: Freyr Brynjarsson – 112 punktar
2. sæti: Guðjón Skúlason – 111 punktar
3. sæti: Kristinn Rafn Sveinsson – 111 punktar
Opin punktakeppni kvenna
1. sæti: Eva Stefánsdóttir – 113 punktar
2. sæti: Þórey Friðrikka Guðmundsdóttir – 110 punktar
3. sæti: Ólöf Einarsdóttir – 105 punktar
Nýliðaflokkur kvenna
1. sæti: Ingunn Rós Valdimarsdóttir – 60 punktar
2. sæti: Berglind Dagný Steinadóttir – 52 punktar
3. sæti: Jóna Kristín Valsdóttir – 51 punktur
65+ höggleikur karla
1. sæti: Kristján Björgvinsson – 245 högg
2. sæti: Þorgeir Ver Halldórsson – 246 högg
3. sæti: Hilmar Theodór Björgvinsson – 253 högg
65+ punktakeppni karla
1. sæti: Guðmundur Hafsteinn Ögmundsson – 69 punktar
2. sæti: Stefán Kristinn Guðlaugsson – 63 punktar
3. sæti: Oddgeir Erlendur Karlsson – 57 punktar
65+ punktakeppni kvenna
1. sæti: Anna Birna Árnadóttir – 66 punktar
2. sæti: Ingibjörg Magnúsdóttir – 52 punktar
3. sæti: Harpa Sigurlaug Guðmundsdóttir – 41 punktur
Nándarverðlaun
Nándarverðlaun voru á öllum par 3 holum alla fjóra keppnisdagana.
5. hola
Dagur 1: Ingimundur Jónsson – 2,61 m
Dagur 2: Einar Aðalbergsson – 1,41 m
Dagur 3: Ólöf Einarsdóttir – 1,48 m
Dagur 4: Stefán Örn Guðmundsson – 2,91 m
9. hola
Dagur 1: Tómas Aron Sigurðsson – 1,95 m
Dagur 2: Hafliði Már Brynjarsson – 70 cm
Dagur 3: Benedikt Jónsson – 2,10 m
Dagur 4: Grétar Helgason – 4,20 m
12. hola
Dagur 1: Ingibjörg Jóhannsdóttir – 96 cm
Dagur 2: Karl Davíðsson – 2,13 m
Dagur 3: Rúnar Óli Einarsson – 2,24 m
Dagur 4: Svanur Vilhjálmsson – 3,45 m
16. hola
Dagur 1: Aron Ingi Valtýsson – 2,32 m
Dagur 2: Kristín Þóra Möller – 78 cm
Dagur 3: Friðrik Alexandersson – 2,51 m
Dagur 4: Davíð Jónsson – 50 cm
Golfhátíð sem lifir áfram
Yfir 100 manns sátu lokahóf Meistaramótsins þar sem Hlynur Guðmundsson og hans teymi í Nítjándu – Bistro & Grill buðu upp á glæsilega veislu. Við færum Hlyni og öllu hans starfsfólki okkar bestu þakkir fyrir framúrskarandi mat og þjónustu alla mótsvikuna.
Golfklúbbur Suðurnesja óskar öllum verðlaunahöfum innilega til hamingju og þakkar jafnframt öllum keppendum, sjálfboðaliðum, starfsfólki, dómurum, styrktaraðilum og áhorfendum sem lögðu sitt af mörkum.
Með metþátttöku, fjölbreyttari keppnisflokkum, spennandi úrslitum og glæsilegu lokahófi markaði Meistaramót GS 2026 tímamót í sögu Golfklúbbs Suðurnesja.



.png)




Comments