top of page
  • Writer's pictureGolfklúbbur Suðurnesja

GS eykur þátttöku sína á sviði sjálfbærni í samstarfi með ON og Reykjanesbæ

Óveðrið þessa helgi hefur verið nýtt til að hefja gröft fyrir lögnum og undirstöðum hleðslustöðva fyrir rafmagnsbíla í samstarfsverkefni Golfklúbbs Suðurnesjar, Orku náttúrunnar (ON) og Reykjanesbæjar.


Á myndinni að neðan eru fyrirhuguð hleðslustæði römmuð í rautt og staðsetning fyrirhugaðra hleðslustaura merkt með bláum punktum. Til að byrja með verða þrír staurar settir upp sem hver og einn mun hafa tvo tengla. Þannig munu samtals sex bílar geta hlaðið samtímis.


Ef nýting kylfinga í Leirunni gefur tilefni til munum við í samstarfi við ON fjölga stöðvum svo fleiri geti hlaðið bílinn á meðan við hlöðum okkur sjálf orku á vellinum. Í dag hófst verktaki handa við að grafa fyrir heimtauginni (langa rauða línan) að hleðslustöðvunum.


Við biðjum ykkur öll að sýna þessu þolinmæði og biðlund. Þessi framkvæmd er til að bæta þjónustu við okkar kæru félagsmenn, styðja við orkuskipti í samgöngum og laða til okkar gesti sem koma lengra að og vilja hlaða batteríin hjá okkur innan vallar og utan.








163 views
bottom of page