top of page

Hólmsvöllur tekur vel við sér – ákvörðun um opnun á mánudag

  • Writer: Golfklúbbur Suðurnesja
    Golfklúbbur Suðurnesja
  • Apr 17
  • 1 min read

Í dag var farið í ítarlega yfirferð yfir Hólmsvöll og er niðurstaðan úr henni mjög jákvæð. Völlurinn lítur vel út og engin svæði sáust með sjáanlegum skemmdum.


Vinnan síðustu daga og hagstæðari veðuraðstæður í vikunni hafa unnið vel með okkur.

Það sést víða að völlurinn hefur tekið góðum breytingum á stuttum tíma og flatirnar hafa sérstaklega tekið vel við sér, sem eykur bjartsýni fyrir næstu daga. Ljóst er þó að völlurinn er nokkuð á eftir miðað við sama tíma í fyrra.


Endanleg ákvörðun um opnun Hólmsvallar verður tekin á mánudag, að lokinni yfirferð vallarstjóra og stjórnenda klúbbsins.


Nánari upplýsingar um opnun æfingasvæðisins verða birtar sérstaklega í byrjun næstu viku.


Við vitum að margir bíða spenntir eftir að komast aftur út á völl og deilum þeirri tilhlökkun. Staðan í dag gefur góð fyrirheit og um leið og endanleg ákvörðun liggur fyrir verður opnað fyrir skráningu.



 
 
 

Comments


bottom of page