Hólmsvöllur opnar á Sumardaginn fyrsta – 23. apríl
- Golfklúbbur Suðurnesja

- 9 minutes ago
- 1 min read
Nú styttist loks í að Hólmsvöllur taki á móti kylfingum á ný, en völlurinn opnar formlega á Sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 23. apríl.
Undanfarnar vikur hefur verið unnið markvisst að því að undirbúa völlinn fyrir opnun og það er ánægjulegt að sjá hversu vel hann hefur tekið við sér síðustu daga.
Samkvæmt Birki vallarstjóra hafa flatirnar tekið vel við áburðargjöfinni og á næstunni verður jafnframt farið að hlúa betur að teigunum svo völlurinn geti tekið sumrinu í sem bestu ásigkomulagi.
Með opnuninni vill Birkir jafnframt hvetja félagsmenn og gesti til að fara vel um völlinn frá fyrsta degi. Þar skiptir miklu máli að laga boltaför, setja torfusnepla aftur á sinn stað, skilja kerrur og golfbíla ekki eftir of nærri flötum og ganga vel um allt svæðið svo rusl og annað fari á rétta staði.
Það er sameiginlegt verkefni okkar allra að taka vel á móti sumrinu í Leirunni og hjálpa vellinum að komast sem best af stað eftir veturinn. Með góðri umgengni frá upphafi leggjum við grunn að betri velli fyrir allt tímabilið.
Við hlökkum til að sjá ykkur á Hólmsvelli á Sumardaginn fyrsta.



.png)




Comments