top of page
  • Writer's pictureGolfklúbbur Suðurnesja

Lykiltölur og fleira

Eins og áður hefur komið fram var aðalfundur Golfklúbbsins haldinn á sunnudaginn var. Fundurinn var hinn ágætasti og sköpuðust líflegar umræður þegar nýjar reglugerðir Meistaramóts og Stigamóts voru lagðar undir fundinn.

 

Lykiltölur:

Rekstratekjur 76 milljónir Rekstrargjöld 80 milljónir Tap fyrir fjármagnsliði 4 milljónir Tap eftir fjármagnsliði 5,3 milljónir Skuldir hækka á milli ára úr 14 miljónum í 17,5 milljónir. Leiknir hringir á Hólmsvelli fóru úr 20 þúsund niður í 18 þúsund sem er 10% á milli ára. Félagafjöldi var 530 sem er fækkun um 30 manns.

 

Stjórn GS 2019:

Jóhann Páll Kristbjörnsson, formaður

Áfram sitja: Helga Steinþórsdóttir, Sigurður Sigurðsson, Sigurrós Hrólfsdóttir og Sveinn Björnsson.

Ný í stjórn (til tveggja ára): Guðni Sigurðsson, Gunnar Þór Jóhannsson, John Berry og Sigríður Erlingsdóttir.

 

Skjöl:

10 views
bottom of page