top of page
  • Writer's pictureGolfklúbbur Suðurnesja

Stigamótaröð GS hefst í næstu viku

Nú styttist í að keppnisgolfið hefjist hjá Golfklúbbi Suðurnesja, fyrsta stigamót sumarsins hefst þriðjudaginn 14. maí og nýtt fyrirkomulag verður á því í sumar.

Á síðasta aðalfundi GS var ný reglugerð um Stigamót GS (áður Þ-mótaröð GS) samþykkt. Helsta breytingin er að nú verður hægt að leika mótið á tveimur dögum (í flestum tilfellum), þ.e. að velja milli þess að leika á þriðjudegi eða miðvikudegi, nú eða bara leika báða dagana og betri hringurinn telur. Þá verður einnig keppt í sér karla- og kvennaflokki í hverju móti og veitt verðlaun í báðum flokkum. Reglugerð um Stigamót GS má lesa hér.

 

Stigamótaröð GS er einnig keppni um sæti í sveitum GS

Reglugerð fyrir val í sveitir eldri kylfinga má sjá hér en Siggi Palli, íþróttastjóri GS, mun kynna sérstaklega á næstu dögum hvernig vali verður háttað í aðalsveitir klúbbsins.

 

Búið er að opna fyrir skráningu í mótið á golf.is en þeir kylfingar sem ætla að leika á miðvikudegi þurfa að skrá sig á rástíma og tilkynna þátttöku sína sérstaklega í skála fyrir hring. Óþarfi er að taka fram að þeir þurfa að hafa meðspilara með sér.

4 views
bottom of page