top of page

Viðhorfskönnun lokið og opnun Hólmsvallar í undirbúningi

  • Writer: Golfklúbbur Suðurnesja
    Golfklúbbur Suðurnesja
  • 6 minutes ago
  • 3 min read

Viðhorfskönnun meðal félagsmanna Golfklúbbs Suðurnesja um uppröðun brauta á Hólmsvelli lauk 6. apríl síðastliðinn. Alls tóku 557 félagsmenn þátt, sem jafngildir 64% svarhlutfalli. Af þeim studdu 257 félagsmenn (46,14%) röðun vallarins eins og hún var árið 2023, 223 félagsmenn (40,04%) vildu halda 2025 röðuninni og 77 félagsmenn (13,82%) voru hlutlausir.

 

Við viljum þakka félagsmönnum fyrir góða þátttöku og þann áhuga sem málið hefur vakið. Mikilvægt er þó að taka fram að niðurstöður könnunarinnar þýða ekki að vellinum verði snúið til baka strax eða að breytingar verði gerðar á þessu ári. Könnunin verður eitt af mikilvægustu innleggjum í stærri og heildstæðari stefnumótunarvinnu sem nú er hafin.

 

Niðurstöðurnar gefa mikilvæga innsýn inn í umræðuna um framtíð Hólmsvallar. Um leið er þó mikilvægt að hafa í huga að könnunin segir okkur ekki nákvæmlega af hverju félagsmenn völdu eins og þeir gerðu. Hún kallar fram afstöðu, en skýrir ekki í smáatriðum hvaða atriði vógu þyngst hjá hverjum og einum. Í umræðunni hefur jafnframt komið fram að hjá mörgum er sterk tenging við eldri útfærslur vallarins, þar á meðal gömlu 1. holuna sem par 5. Það sjónarmið er vel þekkt og er raunar í takti við þá framtíðarsýn sem nú er til skoðunar, enda hentar sú hola að mörgu leyti betur sem par 5.

 

Í ár eru jafnframt 40 ár frá því golfskálinn í Leiru var vígður. Af því tilefni, og með framtíð klúbbsins að leiðarljósi, hefur stjórn Golfklúbbs Suðurnesja hafið undirbúningsvinnu með verkfræðistofu til að horfa 5–15 ár fram í tímann, í anda þeirrar sýnar sem forverar klúbbsins unnu eftir. Þar er horft til framtíðarsýnar fyrir svæðið í heild, meðal annars varðandi uppröðun brauta, lengd og par vallarins, æfingasvæði, par 3 völl og mögulegar breytingar á golfskálanum. Samhliða þeirri vinnu er einnig verið að skoða stærri spurningar um frekari uppbyggingu svæðisins og það hlutverk sem Hólmsvöllur gæti gegnt innan golfíþróttarinnar til framtíðar. Þegar sú vinna hefur tekið skýrari mynd mun stjórn deila henni með félagsmönnum og kalla eftir frekari innsýn, ábendingum og umræðu.

 

Varðandi opnun inn á sumarflatir hefur enn ekki verið tekin endanleg ákvörðun um dagsetningu. Ekki er tímabært að gefa hana út að svo stöddu, en bjartsýnin segir að opnun geti orðið í apríl. Þar mun þróun veðurs á næstu dögum skipta miklu máli, ekki síst hitastig, vindur og úrkoma. Í gær var borið á flatirnar og stykkprufur sýna jákvæð merki.


Á næstu dögum verður einnig dúkað yfir nokkrar flatir til að styðja við bata þeirra. Engin ummerki eru um skemmdir á flötunum, þótt enn sjáist smá snjór á vellinum í hlíðum og skuggasvæðum. Völtun og söndun verða í forgangi í næstu viku. Tappagötun frá haustinu og veðurfar í upphafi árs hafa áhrif á það hvernig völlurinn kemur undan vetri, og síðustu dagar með snjó og rigningu hafa haldið jarðvegi blautum. Einn af styrkleikum Hólmsvallar hefur þó alltaf verið hversu vel og hratt hann nær að taka við sér þegar aðstæður batna.

 

Opnun æfingasvæðisins hefur sömuleiðis dregist, enda er jarðvegur þar enn of blautur til að hægt sé að opna með ábyrgum hætti. Stefnan er þó að opna æfingasvæðið á næstu tveimur vikum, að því gefnu að aðstæður þróist í rétta átt.

 

Á þessu viðkvæma stigi verður jafnframt lokað fyrir skráningu í vetrargolfið til að hlífa vellinum sem best. Við munum upplýsa félagsmenn á ný á næstu dögum, um leið og skýrari mynd fæst á stöðu flatanna, æfingasvæðisins og veðurhorfum.



 
 
 

Comments


bottom of page