top of page
  • Writer's pictureGolfklúbbur Suðurnesja

Æfingasvæðið opnar

Túlkun viðbragðshóps GSÍ á reglugerðinni sem tók gildi 25. mars heimilar golfklúbbum opnun með ákveðnum takmörkunum og því höfum við ákveðið að opna æfingasvæðið okkar frá og miðvikudeginum 31. mars kl. 10:00.


Athugið að skrifstofan verður opin til kl. 17.00 á miðvikudaginn 31. mars til að fylla á boltakort en annars verður lokað yfir páskana.


Æfingasvæði Golfklúbbs Suðurnesja verður opið með eftirfarandi reglum:


  • Hámarksfjöldi á æfingasvæðinu eru 10 manns

  • Kylfingar skulu virða 2 metra regluna

  • Kylfingar skulu spritta körfur, bolta og snertiflöt á boltavél

  • Sprittbrúsar eru aðgengilegir við bása og boltavél

  • Kylfingar skulu sjálfir gæta að almennum sóttvörnum

  • Grímunotkun er skylda þegar farið er á milli bása


Almennar leiðbeiningar til kylfinga sem nýta sér æfingabása og boltavél:


  • Notið helst kylfuna við að draga bolta úr bakka að þeim stað sem slegið er

  • Forðist óþarfa snertingu á golfboltum t.d. við tíun (nota hanska eða kylfu við tíun ef mögulegt)

  • Skilið körfum á sinn stað við boltavél og sótthreinsið hana að lokinni notkun

  • Stranglega er bannað að týna bolta af svæðinu

  • Skrifstofa GS er opin virka daga og hægt að fylla á boltakort á skrifstofutíma.

  • Grímuskylda er í klúbbhúsinu og 10 manns að hámarki geta verið í húsnæðinu



Golfiðkun er áfram heimil utandyra og geta félagsmenn því leikið vetrarvöllinn.


  • Völlurinn er eingöngu opinn félagsmönnum GS

  • Skylda er að skrá sig í rástíma á Golfbox

  • Félagsmenn skulu virða 2 metra reglu

  • Enginn sameiginlegur búnaður eða snertifletir

  • Gæta skal að almennum sóttvörnum


Nú styttist í vorið og viljum við því ítreka við kylfinga sem heimsækja okkur að fara varlega og gæta vel að sóttvörnum. Skrifstofa GS er opin og hægt að fylla á boltakort á skrifstofutíma. Grímuskylda er í klúbbhúsinu og 10 manns að hámarki geta verið í húsnæðinu.



209 views
bottom of page